Ættjarðarvísur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra
1.
Ísland liggur alveg sér
yst við norðurstrikið
ei að síður á því ber
undarlega mikið
lítil álfa metast má
milli hafa tveggja
horfir bæði höfin á
hlýtur kosti beggja.
2.
Það er kennt við eld og ís
öfgar stórar bíður
þar sem ýmist elfan frýs
eða lindin sýður.
Út við strönd þar oft er svalt
eins í kofa og höllum
en það verður engum kalt
uppi á Hveravöllum.
3.
Yfir sér það lítið lét
láns þó nýtur sona
sem með þjóðum setja met
svo að margir vona:
Annað met við munum hér
margir setja í einu
þegar framar enginn er
orðinn frjáls að neinu.