Þorrinn í Saurbænum | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Þorrinn í Saurbænum

Fyrsta ljóðlína:Fjörðurinn Gils er gamall
Viðm.ártal:≈ 2000

Skýringar

http://jonas.ms.is/ljod.aspx?ljodid=234&nafna=%C3%9E
1.
Fjörðurinn Gils er gamall
en gaddurinn alveg nýr.
Stjörnur á bakvið stóris
en stillimyndin er skýr.
2.
Á Þorranum sælar sofa
í Saurbænum frúr og kýr.
Skjögtir í skeggjuðum Jónum:
Þeir skipta um hrotugír.
3.
Útigangshestar höfuð
hneigja við gaddavír.
En selurinn kemur úr kafi
og kallar: „The end is near!“


Athugagreinar

http://jonas.ms.is/ljod.aspx?ljodid=234&nafna=%C3%9E