Sæluvika Skagfirðinga 1970 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sæluvika Skagfirðinga 1970

Fyrsta ljóðlína:Sæluvika á Sauðárkróki
Viðm.ártal:≈ 1975
Flokkur:Gamankvæði
1.
Sæluvika á Sauðárkróki
svefnlaus brúðgumi þar mætti.
Alkóhól í öli og kóki
ýmsir blanda, lund það kætti.
2.
Þá var engum ljúft að lasta.
Léttist gjarna seðlapyngja.
Ellibelgnum allir kasta
er það sæla Skagfirðinga.
3.
Nóttin líður dansinn dunar
draumar rætast margra nátta.
Það er eitthvað um sem munar.
Ætli marga langi að hátta.