Tilbrigði um gömul stef | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Tilbrigði um gömul stef

Fyrsta ljóðlína:Með höfuðstórri á hark ég fór
Viðm.ártal:≈ 1950
Flokkur:Gamankvæði
1.
Með höfuðstórri á hark ég fór
heim svo leiddi meyna
að heimsk er jafnan höfuðstór
hlaut eg þá að reyna.
2.
En bæði er hún blíð og fín
björt á tá og fingur
galar, krunkar, geltir, hrín
gneggjar, tístir, syngur.
3.
Atlot mín hún eiga kaus
allur þraut minn forði
oft er vit í vænum haus
varð mér þá að orði.
4.
Heimfylgd ég svo henni bauð
en hest ei fann í lagi
því afi minn fór á honum Rauð
eitthvað suður á bæi.
5.
Oft við höfum síðan sést
síst er lífið verra
ungum er það allra best
að óttast guð sinn herra.
6.
Þessi bragur þrotinn er
það má telja galla
ástin skríður innan í mér
eins og lús á skalla.