Ef | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ef

Fyrsta ljóðlína:Ef kjarnorkan er notuð gegn friðleysi og flótta
Heimild:Vökurím.
bls.20
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Ef kjarnorkan er notuð gegn friðleysi og flótta
og friðarhugsjón mannkyns að veruleika gjörð
þá kveljast ekki börnin af örvæntingu og ótta
því eilíflangur dagur boðar himnaríki á jörð.
2.
En fái þeir að ráða sem styrjöldunum stjórna
og stundargróði peninganna blinda hefur gert
þá verða hinir saklausu frelsi og lífi að fórna
því formælendur dauðans hafa sigð í blóði hert.
3.
Þá verður óttinn ráðandi í augum jarðar-barna
því afturhvarf frá Guði hefur sálir þeirra gist.
Þá lítur enginn framan við lífsins dulda kjarna
né leitar sinnar hamingju í trú á Jesúm Krist.
4.
Þá skeður það einn daginn, að sprengjan mikla springur
og spurningin er ráðin um afdrif þessa heims.
Þá kreppist fast að jarðlífinu ragnarökkurs fingur
er rennur feigðarmáni um brautir himingeims.