Ónefnt ljóð | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ónefnt ljóð

Fyrsta ljóðlína:Kaffibrúnum leggjum
bls.2. árg. 6. tbl.
Viðm.ártal:≈ 1975
Kaffibrúnum leggjum
feta brjóstgóðar
stúlkur um sand.

Í spor þeirra vaga
feitir kallar
með stráhatta.

Lostinn syndir
í vatnsbláum augum
meðan sólin lækkar
á loftinu.