Jón S. Bergmann | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Jón S. Bergmann

Fyrsta ljóðlína:Liðin Bergmanns ævi er
Heimild:Blágrýti.
bls.109-110
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Liðin Bergmanns ævi er
enduð hetjusaga
manns er átti andbyr hér
alla sína daga.
2.
Þeim sem aldrei lúta lágt
lífið erfitt gengur.
Bera má sitt höfuð hátt
hreinn og falslaus drengur.
3.
Þegar heimska hræsnarans
herti á öllum fjötrum
beitti sverði sannleikans
sorgarbarn í tötrum.
4.
Vatnamýldir seggir sveims
sál hans vildu jarða.
Átti því á auðnum heims
útilegu harða.
5.
Þræddir ekki fjöldans för,
fjöllin vildir klífa,
– bar því sína ævi ör
eftir mannorðshnífa.
6.
Hræddist ekki græðgisgný
glott né yggling brúnar
– þar til lögðust unnir í
efstu sigluhúnar.
7.
Þótt í lífi landvön þjoð
leiðir flestar banni
aldan syngur erfiljóð
yfir hraustum manni.