Vakað yfir vellinum | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Vakað yfir vellinum

Fyrsta ljóðlína:Puntstráum grænum á burstlágum bænum
Viðm.ártal:≈ 1925
Puntstráum grænum á burstlágum bænum
blærinn í draumi vaggar.
Sóleyjar titra, á túnfíflum glitra
tár hinnar fersku daggar.

Brosandi gengur draumlyndur drengur
og dilkær úr túni rekur.
Tvævetlu gráa, túnþjófinn fráa
Tryggur á flótta hrekur.

Húm yfir mónum, móða yfir sjónum,
mistur á Strandafjöllum.
Nú rifjast upp sögur og rímnabrot fögur
af riddurum, álfum og tröllum.

Draumskipin líða út í lágnættið fríða
langt út í víðan geiminn.
Fátækur drengur í draumi gengur,
- draumi um að sigra heiminn.

Birtir af degi, blik yfir legi.
- Bóndinn er kominn á fætur.
Hvert draumskip brennur, er dagur rennur
úr djúpi þögullar nætur.