Af Biskupsbrekku | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Af Biskupsbrekku

Fyrsta ljóðlína:Uxahryggir eru leið
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Uxahryggir eru leið,
inn við bygging hrunda,
ýmsir hyggja ekki greið,
eitthvað þriggja stunda.
2.
Bóndi fús þar beitir ljá,
brokin þúsund gróa.
Sauðir bús ei svelta hjá
Sæluhúsaflóa.
3.
Þar sér hreykir varða vel,
vindur leikur svalur,
löngun kveikir langt um mel
Lundarreykjadalur.