Vatnsnes | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Vatnsnes

Fyrsta ljóðlína:Í fjarveru trjáa grýtt slétta
Höfundur:Ingunn Snædal
Viðm.ártal:≈ 2000
Í fjarveru trjáa grýtt slétta
með svört endalaus fjöll
á aðra hönd

hikandi sól þrykkir
flöktandi myndir
úr svörtum skuggum á jörðina

stórir gráir steinar gera
göt í mistrið
alveg niður í fjöru

sjórinn dregur landið til sín
einn stein í einu