Sjá brostin klakabönd | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sjá brostin klakabönd

Fyrsta ljóðlína:Sjá brostin klakabönd
Höfundur:Einar H. Kvaran
Viðm.ártal:≈ 1900–0
1.
Sjá brostin klakabönd
svo frelsisstyrkur streymir nýr
um storð og andi hlýr
fer yfir ljósbleik lönd.
Tra la la la la la.
Og upp hann stelst að ungri kinn
með ástarkossinn sinn.
2.
Sjá brostin vetrarbönd
svo klakabreiðan þykk og þung
hún þykist orðin ung
og arkar út um lönd.
Tra-la-la-la.
Hún fleygir sér í fjörgum straum
með flissi og æskuglaum.
3.
Sjá brostin dauðans bönd
svo lífið drekkur langan teyg
af ljóssins guðaveig
er fyllir loft og lönd.
Tra la la la la la.
Því gerist allt hið gamla nýtt
hið gretta ljúft og frítt.