Við Kálfastrandarvoga | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Við Kálfastrandarvoga

Fyrsta ljóðlína:Sumar. Og þrestir
Viðm.ártal:≈ 0
Sumar. Og þrestir
þjóta í trjánum; söngur
vegfarandans ómar
að eilífu nýr

en handan voga
í loftinu, liðin öld:

stormbitnum vanga
berst sveipur frá svörtum fjöðrum;
um aldnar hlustir
fer ymur hins brimandi strengs.

Davíð á leiðinni.
Komdu með koníak, Ása.


Athugagreinar

Valdimar Halldórsson bóndi á Kálfströnd við Mývatn ferðaðist til Ítalíu 1921 - og fleiri landa - og hitti þá fyrir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi; voru þeir samtímis á Capri og víðar svo sem frægt hefur orðið. Þá var Davíð kenndur, skrifaði Valdimar löngu síðar í ferðaminningum Davíð hélt síðan tryggð við Valdimar og heimsótti hann oft að Kálfaströnd frma á efri ár beggja. Það er alþýðusögn í Mývatnssveit að ætíð þegar sást til ferða Davíðs hafi Valdimar ávarpað Ásu, ráðskonu sína: Komdu með koníakið, Ása, Davíð er að koma.