Vorþrá | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Vorþrá

Fyrsta ljóðlína:Hvíti, kaldi, harði vetur
bls.56
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Hvíti, kaldi, harði vetur
hypjaðu þig senn á braut.
Nú er mörgum mál á vori
margir líða sára þraut.
Sumar, þig vér sáran þráum
sólskin þitt og hótin blíð
fuglakliðinn, fossaniðinn
flöllit blóm og tún og hlíð.
5.
Komdu, fífill, komdu, sóley
komdu, fugl á skógargrein.
Komdu, ljúfi lækjarniður
leiktu þér við kaldan stein.
Komdu sumars blessuð blíða
bræddu klakann jörðu af.
Láttu ekki lengur bíða
lýðinn við hið ysta haf.