Árblik | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra
Viðm.ártal:≈ 0

Skýringar

Ýmsu er best að geta gleymt.
1.
Árblik skráir unaðsspá
æsku gljáir drauma.
Vekur þrá, er útsýn á
yfir bláa strauma.
2.
Geisla slóðir hulduhljóð
heillar fljóð að drengjum.
Sjafnar glóðir sólaróð
seiða af ljóðastrengjum
3.
Ýmsir fást þar um og slást,
óska, þjást og dreyma.
Rúnir mást er ristir ást
ráð er skást að gleyma.


Athugagreinar

Heim.: Þjóðv. 11/12 1977