Þegar Þorlákur fór frá Leirá | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Þegar Þorlákur fór frá Leirá

Fyrsta ljóðlína:Óðum dimmir, hallast hagur
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Óðum dimmir, hallast hagur
hryggð í breytist gleði senn.
Ljós af himni, líður dagur
Leirársveit, þig kveð ég enn.
2.
Kveð ég þig með stríði ströngu
stirt er að bera raunirnar
og þá menn sem allir voru
ætíð mér til skemmtunar.
3.
Sól, eg ekki sé þig lengur
sígur í dá þín fögur mynd.
Er það af hrekkjum er þú gengur
undir bláan fjallatind.
4.
Viltu ei lýsa vökumanni
viltu ei rísa af næturblund.
. . . gleymt . . .
verndardís um næturstund.