Gamla gatan | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Gamla gatan

Fyrsta ljóðlína:Ég horfi í götuna gömlu
Heimild:Skriplur.
bls.7
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Ég horfi í götuna gömlu
götu í íslenskri sveit.
Úr börmunum vaxa blöð og strá
og blóm, ef mæltu, sagt gætu frá
ýmsu sem enginn nú veit.
2.
Og gatan hlykkjast um mó og mel
þar mörg voru gengin spor.
Hún dýpkaði gegnum öld og ár
þar oftsinnis rölti burðarklár
í auðmýkt með þrautseigju´ og þor.
3.
Þar spyrnt var hófum í harðan stein
svo hrukku af neistaflug
þar töltu fákar lipurt og létt
með leiftur í augum tóku sprett
á illfærum unnu þeir bug.
4.
Víða í götunnar grýttu slóð
var gengið í djúpri hryggð.
Þar mættust einnig hin mildu kvöld
meyja og sveinn og ástin tók völd
jafnvel innsigluð ævitryggð.
5.
En gamlar sögur, götunnar mál
gerast ei lengur hér.
Því gatan er fallin í gleymskudá
og gróin upp víða mosi og strá
samt heillar hún hugann að sér.