Hugleiðing um stríðið | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Hugleiðing um stríðið

Fyrsta ljóðlína:Vér gengum um hrjóstruga heiði
bls.40
Viðm.ártal:≈ 1950–0
1.
Vér gengum um hrjóstruga heiði
um hraunstorku, klungur og möl
og allt var í tómi og eyði
og endalaus þreyta og böl -
svo blýþungt á brjósti og herðum
svo bindandi, hvað sem við gerðum
lá sekt vor og sorg vor og kvöl.
2.
En vér hófum í hörmung og villu
vor hjörtu við kórsöng og spil:
Ó frelsa oss, faðir, frá illu
á för vorri helvítis til
oss þúsundir þjakaðra manna
sem þekkjum hið rétta og sanna
og kunnum á kærleika skil.
3.
Það hlutverk er harðast að rækja
og hjartanu blóðmissir vís
til öfugrar áttar að sækja
frá áfanga, er hugurinn kýs
að bera í sér þrá til hins besta
en beygja sig fyrir því versta
hvern dag, sem af djúpinu rís.