Mýsuð | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Mýsuð

Fyrsta ljóðlína:Mikið er um hjá mýi á skán
Viðm.ártal:≈ 0
Flokkur:Skáldsþankar
1.
Mikið er um hjá mýi á skán
með mælgi og látum skrýtnum.
Það lofar þá mildi og miklar það lán
að mega lifa í skítnum.
2.
Hver kúadella er kostaland.
Þá kenning er skylt að boða
að jörðin sé skítur, hafið hland
og himinninn keytufroða.