Einn ég veit - - | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Einn ég veit - -

Fyrsta ljóðlína:Einn ég veit sem ei þér gleymdi
bls.38
Viðm.ártal:≈ 0
Einn ég veit sem ei þér gleymdi
ef þig skorti dug
- þó rakstu hann oft í raunum þínum,
reiði þinni, á bug.
Hann stóð vörð um vonir þínar
væri þungt í hug.
Gegnum myrkur margra alda
mjúkt hann þreytti flug.
2.
Þegar styrk þinn ber á brautu
bárótt tímans flóð
Þegar hvolfþök hallar þinnar
hrynja í logaglóð
hann er nær sem hljóður ratar
hjartans leynislóð.
Legg við hlustir þú, sem þráir -
þetta er gamalt ljóð.
3.
Inni í hugans dulardjúpi
draumsins álfur býr
og úr rauðum anganblómum
örlögþáttu snýr.
- Þegar löngu liðin eru
lífs þíns ævintýr
hann með sínum hvítu vængjum
hurðir Sesams knýr.