Heim | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Heim

Fyrsta ljóðlína:Heim í friðarins reit
Höfundur:Höfundur óviss
Heimild:Handrit BJ.
Viðm.ártal:≈ 0

Skýringar

Lag: Fram í heiðanna ró
1.
Heim í friðarins reit
er ég fegurstan leit
þar sem fossbúinn hörpuna slær.
Þar leið bernskan mín öll
við hin blákrýndu fjöll
eins og bergvatnslind hljóðlát og tær.
2.
Þar lék suðrænan blíð
oft við smábarn í hlíð
þar hló sælan um vordægrin löng
Þar varð ást mín að þrá
til þess alls er ég sá
við árnið og heiðlóusöng
3.
Þar var hlegið svo dátt
þar var hrópað svo kátt
þar var hlaupið um algróinn völl.
Þar sat von mín og þrá
ungu vinunum hjá
oft að veislu í draumanna höll.
4.
Ó, þú suðrænutíð
er við systkin mín blíð
létum söngva og gleði fá völd..
Þú átt hjarta mitt enn
og við hittumst þar senn
eitthvert himinskært, mánabjart kvöld.

Viðlag: Svanavatnið ég sé
þar sem sóley í varpanum grær.
Þar leið bernskan mín öll
við hin blákrýndu fjöll
eins og bergvatnslind hljóðlát og tær. T.G



Athugagreinar

Höf. sendi Bjarna Jónassyni ljóðið og skrifar með:
Herra Bjarni Jónasson og frú Anna Sigurjónsdóttir, Blöndudalshólum A-Húnavs. - - - AÐ gamni mínu sendi ég ykkar þessar fátæklegu kveðjur  - til fóstrunnar góðu - þar sem ég veit, að þið sem einnig eigið fegurstu minningar frá tímum æsku og vona og yndislegra drauma - í nóttlausri voraldarveröld - skiljið au vel. Með bestu kveðjum og þökk fyrir ágæt kynni. T.G