Óður til Blöndu | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Óður til Blöndu

Fyrsta ljóðlína:Þú byltist fram, þú beljar og fossar
bls.64
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Þú byltist áfram, þú beljar og fossar
ó, Blanda, sem áður fyrr.
Þig seiða og töfra sjávarins kossar
í sál þér er hamingjubyr.

2.
Þú átt svo margt af minnum og vinum
svo marga hamingjunótt.
Á þínum bökkum, í beljandi ginum
hef ég barn minn fögnuð sótt.

3.
Þú áttir fyrsta óð minn og drauma,
mína ást og hamingjutal.
Þú töfraðir fram mína tregans strauma
mitt tál og harmahjal.

4.
Hver þín alda var óskadraumur
hver ógn mitt vald og sorg.
Hvert þitt gjálpur minn gleðiflaumur
mín gæfa og framaborg.

5.
Ó, Blanda, ó, Blanda, þú sem beljar og fossar
þitt blóð, þitt töfrandi lín
þinn niður, þinn óður, þínir ástarkossar
allt það er hamingja mín.



Athugagreinar

Ljóðið birtist líka í ársritinu Húnavöku með örlitlum orðamun. Er því tvískráð hér í safnið.