Undralandið | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Undralandið

Fyrsta ljóðlína:Viltu góða vina mín
bls.31
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1950
1.
Viltu góða vina mín
um vorsins glaða stund
sigla hjá mér sjóinn á
er sólin kveður grund
og hafið bláa blundar vært
en blærinn andar rótt?
Þá siglum við til vonalands
og vökum þar í nótt.
2.
Ég sé að heillar huga þinn
sá hreini, víði mar
því ástarblíðu augun þín
við öllu gefa svar.
En veistu kæra vina mín
hvar vonalandið er?
Ég fann það út við ystu höf
og umgirt bláum ver.
3.
Vort undraland um alheimsbyggð
á engan líka sinn
og alla daga ár og síð
þar unir hugur minn.
En öngvir nema elskendurnir
undralandið sjá
og aðeins þeir sem elska vor
og ilm af blómum þrá.
4.
Þar heiðríkjunnar háu tjöld
við hafið tengja bönd
en bylgjan tæra leikur létt
við lága gróna strönd.
Og þúsund raddir syngja söng
um sólarlagsins dýrð
en dalablómin dreymir vært
í daggartárum skírð.
5.
Og enginn þar af heitum huga
heiftug mælir orð
og aldrei hefur bróðurbani
blettað þessa storð.
En lömbin smáu leika sér
við ljón og úlfahjörð
og hollar vættir halda þar
um haf og landið vörð.

6.
Nú siglum við í sumarblæ
um svala víða dröfn
og léttu fleyi vendum við
í vonalandsins höfn
því tvö við eigum athvarf þar
í Edens grænum lund
og löng ei verður vakan oss
um varma næturstund.