Sigurður Breiðfjörð | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sigurður Breiðfjörð

Fyrsta ljóðlína:Stríð var þín ævi; strokið móðu þungri
Viðm.ártal:≈ 1960–1970
1.
Stríð var þín ævi; strokið móðu þungri
stuðlaberg rímsins var þín dauðalíkn;
nú andast skáld úr öðru meir en hungri.
2.
Heiðríkjubros af Bragavörum fengu
er bar þig fley að klakans úrgu strönd
sætgeðja konur sem á buxum gengu.
3.
Sigurður Breiðfjörð svanur þjóðaróðs
söngstu á frera horfinn sól og degi
þú sem varst tákn hins tíu alda ljóðs.
4.
Þú misstir flug og náðir ei með öðrum
í átt til sólar, þeim er lengra svifu
og hafa í skrautvönd safnað sínum fjöðrum.
5.
En svo að liðnum löngum myrkum dögum
lyftirðu særðum vængjum einn og hrakinn
máttvana sveifstu burt úr bitnum högum.
6.
Sem svanafjöður ósnert ein í væng

á utanflugi datt úr blámans geimi
og hrakinn smala hreif á mosasæng

7.
kom vísa þín í vörslur þeim er fengu
vansælli þjóð er krýndi svaninn horfna
jafnskjótt og för þín jarðnesk varð að engu.




Athugagreinar

Ljóðið er tekið upp úr Lesarkasafni: Þorsteinn frá Hamri Kvæði Iðunn Valdimar Jóhannsson 1973 Sverrir Hólmarsson bjó til prentunar