Björg Karitas Þorláksdóttir | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Björg Karitas Þorláksdóttir 1874–1934

EIN LAUSAVÍSA
Hún nefndi sig – eftir slit á hjónabandi með Sigfúsi Blöndal – Björg Caritas Þorláksson (fædd 30. janúar 1874 í Vesturhópshólum í Húnaþingi, dó 25. febrúar 1934 í Kaupmannahöfn), var fyrsta íslenska konan til að ljúka doktorsnámi. 17. júní 1926 varði hún doktorsritgerð sína í sálfræði við Sorbonne-háskóla og hlaut riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu sama ár. Björg giftist Sigfúsi Blöndal árið 1903 og tók þá nafnið Blöndal en eftir að þau Sigfús skildu 1923 tók hún upp nafnið Björg C. Þorláksson. Björg birti fjölda þýðinga á ýmsum greinum í tímaritum á borð við Skírni. Ásamt Sigfúsi manni sínum vann hún að gerð dansk-íslenskrar orðabókar. Úr wikipedíu
Björg var komin af Reynisstaðamönnum og Bjarna sýslumanni á Þingeyrum í móðurætt sína.

Björg Karitas Þorláksdóttir höfundur

Lausavísa
Ó þrautirnar unnar sem Skapanorn mér skóp