Sigríður Jónsdóttir frá Haukagili/Eyrarkoti | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sigríður Jónsdóttir frá Haukagili/Eyrarkoti 1855–1933

FJÓRAR LAUSAVÍSUR
Fædd á Haukagili í Vatnsdal. Foreldrar Jón Jónsson og Elínborg Guðmundsdóttir á Gafli í Svínadal. Maður hennar var Davíð Jónatansson frá Marðarnúpi - meðal barna þeirra voru Steingrímur skólastjóri á Blönduósi og Lúðvík Norðdal læknir á Selfossi.
Í Íslendingabók segir: 6. september 1855 - 18. júní 1933 Fósturbarn í Grímstungu, Grímstungusókn, Hún. 1870. Vinnukona á Smyrlabergi, Hjaltabakkasókn, Hún. 1880. Húskona á Njálsstöðum, Höskuldsstaðasókn, Hún. 1890. Húsfreyja í Eyrarkoti.
Sigríður þótti ör í lund, bráðgáfuð og fljót til svars. Ekki var hún síður hneigð til bóklegra mennta en Davíð maður hennar. Heimild: Lúðvík Norðdal Davíðsson - æviágrip 2020

Sigríður Jónsdóttir frá Haukagili/Eyrarkoti höfundur

Lausavísur
Hingað lotinn heim venti
Veit ég beinn minn vegur er
Vel ef beinn að vegur er
Yndið fallið er í dá