Sveinn Sölvason lögmaður | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sveinn Sölvason lögmaður 1722–1782

ÞRJÁR LAUSAVÍSUR
Sveinn var sonur Sölva Halldórssonar klausturhaldara á Munkaþverá og konu hans, Halldóru Jónsdóttur frá Tungu í Fljótum. Sveinn nam lög í Kaupmannahöfn og lauk prófi í þeim 1742. Varð hann sama ár varalögmaður norðan og vestan og síðan lögmaður 1746 og hélt því embætti til æviloka og bjó á Munkaþverá. Sveinn ritaði nokkuð um lögfræði og skrifaði Íslandsárbók 1740–1781. Hann orti einnig talsvert og voru rímur hans af Gissuri jarli Þorvaldssyni prentaðar í Leirárgörðum árið 1800.

Sveinn Sölvason lögmaður höfundur

Lausavísur
Hrafn situr á hárri stöng
Týnd er æra töpuð sál
Týnd er æra, töpuð sál