Sumar | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Sumar

Fyrsta ljóðlína:Hjarta mitt er tómt
Viðm.ártal:≈ 2000
Flokkur:Tregaljóð
Hjarta mitt er tómt,
hugurinn eins og öræfi um vetur.
Hvenær lagðist þessi þögn
yfir húsið mitt?
Var það þegar börnin
fóru burt
eða barnabörnin
urðu fullorðin?
Kannski Guð
hafi misskilið
bæn mína um frið.