Móðir mín | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Móðir mín

Fyrsta ljóðlína:Yndisleg varst þú móðir mín
Viðm.ártal:≈ 1975
Yndisleg varst þú móðir mín
oft mátti ég til þess finna.
Blíðust þekkti ég brosin þín
til barnanna litlu þinna.

Þú áttir svo mikið af móðurást
og miðlaðir henni víða.
Viljinn til hjálpar þér varla brást
ef vissir þú einhverja líða.

Þú varst gætin og góðviljuð
og glaðværð þín marga hressti.
Hjartnæma trú á góðan Guð
þú gafst mér að veganesti.