| Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra
AAAA12

Grasið bærir blærinn hlýr

Höfundur:Hreinn Þorkelsson
Heimild:Fésbók


Tildrög

Miðnæturreið í Önundarfirði
Grasið bærir blærinn hlýr
báran rís og hnígur
sumars yndi og ævintýr
inn í hugann smýgur

Æður stygg nær ungum sín
út á voginn mjaka
til að reyna fitin fín
- fjöllin yfir vaka

Síðla kvölds á sinni vakt
sólin geislar kelin
fluglétt klappar fjaran takt
fákar bryðja mélin


Athugagreinar