Murneyrarljóð | Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (113)

Murneyrarljóð

Fyrsta ljóðlína:Það vekur oss fögnuð hvert Murneyrarmót
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1985
Það vekur oss fögnuð hvert Murneyrarmót
er miðnæturdaggartár glitra.
Og áin með straumköstum glettist við grjót
en grundir af jódunum titra.
Þar hrossin í girðingum hneggja og kljást
og hálffullir karlarnir þrefa og slást
en straumar af lífsgleði yndi og ást
um ungdómsins blóðrásir sitra.

Menn sýna af tilþrifum tölt eða skeið
og taumhald og ásetu vanda.
Með skrautofnar flíkur og fegurð í reið
en fákar á öndinni standa.
Þá sjá má á vellinum sigra og töp,
sýnendamistök og dómaraglöp.
En sannur er íþróttaandinn hjá knöp-
unum er þeir geði blanda.

Gleðskapur magnast hvert Murneyrarkvöld
og margur fær glapist af honum.
Er léttúðin hefur í hjörtunum völd,
menn hallast að drykkju og konum.
Og inni í tjöldunum tæmd eru staup,
tekið ögn framhjá og hesta- gerð kaup.
Já, þar eru samræður söngvar og skaup
og sálirnar fullar af vonum.

Fagur er morgun á Murneyrarslóð
þó margur af hausverkjum blóti.
En síst skyldi undrast þó ýtar og fljóð
þann afrakstur gleðinnar hljóti.
Mannlífs í hretum og hversdagsbyl
mun hugljúfust minningin veita yl.
Á heimleið menn byrja að hlakka til
að hittast á næsta móti.