Skáldaminning | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Skáldaminning

Fyrsta ljóðlína:Nú megið sakna svans
bls.140
Bragarháttur:Sex línur (tvíliður) þrí- og fimmkvætt aaBccB
Viðm.ártal:≈ 1850
1.
Nú megið sakna svans,
þið svannar Ísalands,
er ár dags hætti ástarrómi blíðum.
Þið megið muna hann
er mesta yndi fann
í því að skemmta daladrósum fríðum.
2.
Nú hryggt og hljótt er þar
er hlegið og sungið var
og brostinn ungur Braga hörpustrengur;
í eyrum ómur hans
af orðum kveðandans
þó mörgum eldri megi hljóma lengur.