Fögnuður | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Fögnuður

Fyrsta ljóðlína:Dreymandi / sveimandi
bls.17–19
Bragarháttur:Tíu línur (tvíliður) AABBcDDEEc
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Dreymandi
sveimandi
dáðfróður
ráðgóður
dugur þinn er.
Hrífandi
svífandi
háfjöllin
bláhöllin
helgar hann sér.
2.
Glitkögur
litfögur
gefandi
sefandi
gulldrottning mín!
Ágætur
fágætur
unaður
munaður
aldrei þinn dvín.
3.
Hvarmurinn
barmurinn
hýrinn þinn
dýri minn
heitrauða vör
villir mig.
Hyllir þig
vorljóð mitt.
Sporhljóð þitt
vekur mér fjör.
4.
Fáðu þér,
ljáðu mér
flugdjörfun,
hugörvun,
fagnaðaróð;
blómunum
hljómunum
blessandi,
hressandi,
blysgyðjan rjóð!
5.
Ljósin þín,
rósin mín,
leiði mig
eyðistig
langförum vel;
leikandi
reikandi
lýsandi
prísandi
lífið og hel.