Sætrölls kvæði | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Sætrölls kvæði

Fyrsta ljóðlína:1. Kóngurinn og drottningin / á þann sunnudag
bls.102
Viðm.ártal:≈ 0
Flokkur:Sagnadansar
1.
Kóngurinn og drottningin
á þann sunnudag
héldu sínum skipunum
á það myrkva haf.
–Enginn veit til angurs fyrr en reynir.
2.
Þegar að þau komu
á það myrkva haf
þá tók allan byrinn af
svo hvörgi gaf.
–Enginn veit til angurs fyrr en reynir.
3.
Þar komu upp loppur
og þar komu upp klær,
allt upp undir olnboga
loðnar voru þær.
–Enginn veit til angurs fyrr en reynir.
4.
„Hvörsu mikið rauðagull
ska eg gefa þér
ef þú lætur skipið
skríða undir mér?“
–Enginn veit til angurs fyrr en reynir.
5.
„Eg hirði ei um þitt rauðagull
né þitt brennda fé
og ekkert nema þann fríða svein
er situr þér á kné.“
–Enginn veit til angurs fyrr en reynir.
6.
Móðir tók sér gullkamb
og kemdi sveinsins hár
en með hverjum lokkinum
þá felldi frúin tár.
–Enginn veit til angurs fyrr en reynir.
7.
Þegar þau höfðu af hendi selt
þann unga svein
bruna tóku skipin
undir báðum þeim.
–Enginn veit til angurs fyrr en reynir.