Sól kemur sunnan | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Sól kemur sunnan

Fyrsta ljóðlína:Sól kemur sunnan
bls.43
Viðm.ártal:≈ 1850
Tímasetning:Apríl 1851
1.
Sól kemur sunnan,
sendir geisla mæra,
alfagra ekur,
eldbraut himintæra
og ljósgeisla lætur
ljóma’ úr hverju spori,
vaknaða á vori.
2.
Árgeisla andar
yllur lífi á kalda
lilju, en ljóstær,
laugar kveldsól alda.
Fuglar sjást að sunnan,
á söngum fögrum klifa:
„Allt langar að lifa“.