Til Ríkarðs (Jónssonar) og Kjarvals á Austfirðingamótinu 7. ágúst 1921. | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Til Ríkarðs (Jónssonar) og Kjarvals á Austfirðingamótinu 7. ágúst 1921.

Fyrsta ljóðlína:Oss gisti ekki konunga og krónprinsa sveit
bls.81
Viðm.ártal:≈ 1900–1925
Tímasetning:1921
1.
Oss gisti ekki konunga og krónprinsa sveit
en kannski oss bætist sá skaðinn
og eigum þess hlýrri og rúmbetri reit
fyrir Ríkarð og Kjarval í staðinn.
2.
Þótt fátt sé af krossum og hirðskrauti hér,
háværum veislum og seimi,
með kyrrlátri lotningu krjúpum þó vér
kóngum úr listanna heimi.
3.
Og drottningin, fóstran sem upp ykkur ól,
mun eitthvað af mörkunum láta,
hún býður í fjallanna faðminum skjól
við fjörið og æskuna káta.
4.
Meðan að hnjúkarnir halda sinn vörð
og hrynjandi fossarnir duna
munu þeir höldar sem hér byggja fjörð
heimsókn og kynningu muna.