Úr bréfi til kunningja | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Úr bréfi til kunningja

Fyrsta ljóðlína:Ó, að þú værir inni hér
bls.25
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) aBBaCCdd
Viðm.ártal:≈ 1850
Tímasetning:1853
1.
Ó, að þú værir inni hér
eins og forðum í gamla daga,
og hallaðir þér að brunni Braga,
það brennur svo í huga mér
að vita þig fjarri, vinur besti!
Og vera ekki fær um nesti
til fararinnar að finna þig,
fádæmi er hvað það særir mig.
2.
En það skaltu vita, vinur kær!
vond þó mig forlög sífellt elti
og andans lappir ávallt helti,
er ég þó reyndar nokkru nær,
sjái ég frá þér svart á hvítu,
svolitla miða, agnar grýtu,
þegar ég brýt upp bréfin þín,
brotnar armæðuviðja mín.
3.
Tóm finnst mér vera eyða allt,
allmarga þó ég glaða sjái,
dafnar í mér, sem dögg á strái,
dauðans helblæju hrímið kalt,
sem enginn megnar upp að þíða,
allt má því sinna tíma bíða,
þar til í draumi sólna sól
sé ég niðrundir grænum hól.