Kvennaáratugur - 1985 | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Kvennaáratugur - 1985

Fyrsta ljóðlína:Konur standið í stafni
Höfundur:Ingimar Bogason
bls.90–91
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Konur standið í stafni
og stýrið í Drottins nafni.
Þið hafið verk að vinna
og viljið stefnuna kynna,
og vera virkar í störfum
og vinna að landsins þörfum.
2.
Í sókn er sigurinn fenginn
ef sláið á hörpustrenginn
og látið orð ykkar óma,
með andlegum krafti hljóma
hátt yfir landsins lýði
í löngu hagsmunastríði.
3.
Manngildi er mesta þörfin
og minnir á skyldustörfin.
Ef konur á verðinum vaka
þær völdin að síðustu taka
og standa með stjórnartauma
í stormi jafnréttis drauma.
4.
Uppeldisáhrif móður
er andlegur lífsins gróður.
Að líkna lúnum og hrjáðum,
að lækna meinin hjá þjáðum,
er ódauðlegt aðalsmerki
ykkar að sýna í verki.
5.
Sækið fram til að sigra,
sjóði eignist þið digra.
Merkingu hátt skal halda,
hefjið nú sókn til valda.
Jafnréttið kýst þú, kona,
í krafti trúar og vona.
6.
Sóknin er sigurvilji,
sem að öll þjóðin skilji,
arðsemi, gæfa og gengi
þá geta margfaldast lengi.
Ef konur sem standa í stafni
stýra í drottins nafni.