SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3065)
Afmæliskvæði (14)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (6)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (30)
Grýlukvæði (6)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (7)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Náttúruljóð (50)
Rímur (204)
Sagnadansar (36)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (13)
Særingar (1)
Söguljóð (9)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (4)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (38)
Ævikvæði (5)
Alþing hið nýjaFyrsta ljóðlína:Hörðum höndum / vinnur hölda kind
Höfundur:Jónas Hallgrímsson
bls.112–114
Viðm.ártal:≈ 0
1. Hörðum höndumvinnur hölda kind ár og eindaga; siglir særokinn, sólbitinn slær, stjörnuskininn stritar. 2. Traustir skulu hornsteinarhárra sala; í kili skal kjörviður; bóndi er bústólpi, bú er landstólpi, því skal hann virður vel. 3. Fríður foringistýri fræknu liði, þá fylgir sverði sigur; illu heilli fer að orustu sá er ræður heimskum her. 4. Sterkur fór um veg,þá var steini þungum lokuð leið fyrir; ráð at hann kunni, þó ríkur sé, og hefðu þrír um þokað. 5. Bera býbagga skoplítinn hvert að húsi heim; en þaðan koma ljós hin logaskæru á altari hins göfgva guðs. 6. Vissi það að fulluvísir hinn stórráði. Stóð hann upp af stóli, studdist við gullsprota: „Frelsi vil eg sæma framgjarnan lýð, ættstóran kynstaf Ísafoldar. 7. Ríða skulu rekkar,ráðum land byggja, fólkdjarfir firðar til fundar sækja, snarorðir snillingar að stefnu sitja; þjóðkjörin prúðmenni þingsteinum á. 8. Svo skal hinu ungaalþingi skipað sem að sjálfir þeir sér munu kjósa. Gjöf hefi eg gefið, gagni sú lengi foldu og firðum sem eg fremst þeim ann.“ 9. Þögn varð á ráðstefnu,þótti ríkur mæla, fagureygur konungur við fólkstjórum horfði; stóð hann fyrir stóli, studdist við gullsprota, hvergi getur tignarmann tíguglegri. 10. Sól skín á tinda.Sofið hafa lengi dróttir og dvalið draumþingum á. Vaki vaskir menn, til vinnu kveður giftusamur konungur góða þegna. |