Bágindi | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Bágindi

Fyrsta ljóðlína:Illa er mér við óleik þinn
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) fer- og þríkvætt aaaBcccB
Viðm.ártal:≈ 1850
Tímasetning:1844

Skýringar

Tvö eiginhandarrit eru til. Annað er varðveitt í Árnastofnun í handritasafni Konráðs Gíslasonar (KG 31 a II). Hitt er varðveitt á Landsbókasafni (ÍB 13 fol. Handritasafn Bókmenntafélagsins).
Frumprentun í: Rit eftir Jónas Hallgrímsson I (Ljóðmæli, smásögur og fleira). Rvík 1929. [Heildarútgáfa á verkum Jónasar í umsjón Matthíasar Þórðarsonar þjóðminjavarðar í 5 bindum sem kom út í Rvík á árunum 1929-37]. Heimild: jonashallgrimsson.is
„Illa er mér við óleik þinn,
er þér heimilt pútuskinn,
en láttu vera líkama minn,
lifandi sálar kroppinn!“
Eg hefi fundið illa kind,
á henni var háðsleg mynd,
það var líkast lús eða synd –
ég lagði hana í koppinn.