A 313 - Enn lofsöngur og bæn | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

A 313 - Enn lofsöngur og bæn

Fyrsta ljóðlína:Faðir á himnahæð
Bragarháttur:Fjórar línur (tvíliður+) þríkvætt:aaBB
Viðm.ártal:≈ 0
Enn lofsöngur og bæn
[Nótur]

1.
Faðir á himnahæð
hvör fyrir Jesú náð
elsku þína oss vottar
önd og líkam mettar.
2.
Hvað um loft, vötn og jörð
lifir og hefur ferð,
forsorgar og framfærir,
fjölgar, klæðir og nærir.
3.
Blessar öll börnin þín,
burt tekur synd og pín,
fær þeim fæðu hreina
fyrir þinn son alleina.
4.
Til lofs og dýrðar þér,
líka sem kristnum ber,
þiggjum í dag þakklátir
þitt lán sem oss veitir.
5.
Lát oss í hreinum hug
halda oss við þinn veg
svo með samvisku góðri
seðjunst voru fóðri.
6.
Veit oss það verði fyllt
sem vottar Páll oss skylt.
Gleymum ei þínu orði
yfir voru borði.
7.
Lát oss ei líkjast þeim
lýð, sem stundaði heim,
hvörjum þú hlýðir eigi
hvað skrift af þeim segir.
8.
Meðan mettuðu sig
minntust þeir síst á þig.
Gjörðu sér heiðna gleði,
grimm féll á þá reiði.
9.
Hjálp oss nú, Herra kær,
svo heiður þinn eflum vær
fyrir frelsarann Kristum.
Faðir á þig treystum.