A 17 - Einn lofsöngur um Kristí pínu | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

A 17 - Einn lofsöngur um Kristí pínu

Fyrsta ljóðlína:Sinn heilaga kross vor herra bar
bls.33–34
Viðm.ártal:≈ 0

Skýringar

Þetta er danskur sálmur eftir Morten Mortensen Hegelund (1490–1565), Den hellige Kors vor Herre selv bar, 1553 og mun hann ortur upp úr fornum lofsöng. Telst hann einn fárra sálma siðskiptatímans sem teljast mega aldanskir. Guðbrandur biskup er með aðra þýðingu í Sálmabók 1589 (nr. 66) Þann helga kross vor Herra bar. Hélst hann þannig í messusöngsbókum til loka 18. aldar. 
Í Graduale 1594 er önnur þýðing, Að Christi móðir Maríá
1.
Sinn heilaga kross vor herra bar
með blóðugar undir og dauðlig sár.
Fyrir oss hann bót og fullnað gjörði,
vér urðum ei keyptir með öðru verði.
2.
Sancta María móðir að Krist
og allir helgir hjá Guði eru víst
fyrir Kristí skyld það skeði alleinist
enn ei fyrir nokkrir þeir forþénist.
3.
Allir góðir kristnir menn
víða í Skriftinni það finna enn,
að vilja þeir nokkra sáluhjálp finna
fyrir vor skyld það sker alleina.
4.
Þinn heilagi andi veri vor túlk
og lær oss auma kristið fólk,
leið oss alla á réttan frama
frá manna lærdómi og vondum siðvana.
5.
Öll æra og prís veri einasta Guð
sem sendi sinn son til jarðríkis út.
Hann stýri og regerer oss alla saman,
vér viljum hann óttast og elska, amen.


Athugagreinar

5.3 regere: ríkja.