Á fjöllunum sólin fögur skín | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Á fjöllunum sólin fögur skín

Fyrsta ljóðlína:Á fjöllunum sólin fögur skín
Heimild:Lbs 838 4to.
bls.129v–130r
Viðm.ártal:≈ 0

Skýringar

Fyrirsögn: Prestur reyndi penna sinn og mælti svo:
1.
Á fjöllunum sólin fögur skín
með fegurðarljóma sínum.
Hún er gefin sem heilsuvín
af heilögum guði mínum.
2.
Allt sem vermir upp og niður
illa og góða lýði
hana til reiddi himnasmiður,
heimsins fegurstu smíði.
3.
Mitt þó að hrörni hjartans tún
og hafni veraldar blóma
ávallt stár að eg sem hún
á um síðir að ljóma.
4.
Undanfæri og ekkert skjól
er nú í mínu valdi.
Vertu mér, Jesús sæli, sól.
Sígur að veturinn kaldi.