Ísland | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Ísland

Fyrsta ljóðlína:Ó, fögur er vor fósturjörð
Höfundur:Jón Thoroddsen
bls.1–2
Bragarháttur:Tvöföld ferskeytla
Viðm.ártal:≈ 1850

Skýringar

Undir titli stendur: „(Piltur og Stúlka 1850, 119–120; 1867, 132–133).“
1.
Ó, fögur er vor fósturjörð,
um fríða sumardaga,
er laufin grænu litka börð
og leikur hjörð í haga
en dalur lyftir blárri brún
mót blíðum sólar loga
og glitrar flötur glóir tún
og gyllir sunna voga.
2.
Og vegleg jörð vor áa er
með ísi þakta tinda,
um heiðrík kvöld að höfði sér
nær hnýtir gullna linda,
og logagneistum stjörnur strá
um strindi, hulið svellum,
en hoppa álfar hjarni á
svo heyrist dun í fellum.
3.
Þú fósturjörðin fríð og kær
sem feðra hlúir beinum
og lífið ungu frjóvi fær
hjá fornum bautasteinum,
ó, blessuð vertu fagra fold
og fjöldinn þinna barna,
á meðan gróa grös í mold
og glóir nokkur stjarna!