Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3139)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Hæstur drottinn himnarannsFyrsta ljóðlína:Hæstur drottinn himnaranns
Viðm.ártal:≈ 1850
Flokkur:Eftirmæli
1. Hæstur Drottinn himnaranns,hafinn guðdóms krafti, það er vottur visku hans að veröld alla skapti.
2. Eg er smíði handa hans,hreinsuð skírnar trúnni, örtuð prýði innra manns, alin þekkingunni.
3. Lofaður sértu sanni guð,svo að huggun fyndum, opinbert um alfögnuð, oss er mannakindum.
4. Gæskan þín mér gleymist síst,glæðist vonin skæra, þrýtur pín og það er víst, þinn fyrir soninn kæra.
5. Alla fyrir dýrð og dyggð,drottinn góður, þína, gjörðu hæfa hugar byggð, helgum anda, mína.
6. Þungt er hrís á herðum mín,hrösun laðast fæti, mér auglýsi miskunn þín mátt, svo staðist gæti.
7. Ó, minn faðir ást og trú,auktu barnkind þinni, Guð blessaður gleymdu nú glæpa iðju minni.
8. Ristu sekkinn sorga minn,seð mig þínu blóði, fyrst að ekki afundinn, ertu Jesú góði.
9. Andinn friðar og bænar,angist mína sefi, kveiki viður, kulnað skar, kjarna lífs mér gefi.
10. Réttlátasta þrenning þýð,þanka mína stilli, svo að lasta lifnaðs hríð lengra mig ei villi.
11. Jesú Guðs hinn sanni son,sem að lést þig pína, alfögnuðs lát eiga von, erfingjana mína.
12. Náðarbrunnur nauðstaddra,nær mig frjálsu brauði; að fylli ég munna félausra, fús af léðum auði.
13. Sorgir pína sinnu stig,svalaðu mínu hjarta, æ, lát skína yfir mig, ásján þína bjarta.
14. Drag mig sára svikum frá,og „selskap“ vondra þjóða, heim svo rati ég hafnir á, himnaríkis góða.
15. Ó! ég væri verðug þess,vegsemd slíka að fanga, upp í skærum sælu sess, sitja um eilífð langa.
16. Taktu Jesú málstað minn,mjúkt hjá föður þínum, þá er öndin ókvíðin, öllum rúinn pínum.
17. Tjái þér sem til er allt,tign og æru hreina, á himni og jörðu, heitt og kalt, hverja stund og eina.
18. Indæl verður ævin mín,eigi hátt ég glósa, ummynduð þar öldin skín, aðstoð Drottins hrósa.
19. Ringast tímgað táraflóð,traust er naust að stafni, héðan ríða hjálpar slóð, Hlés, í Jesú nafni.[1] Athugagreinar
[1] Lbs 4370 8vo, bls. 126-129. Lbs. 1883 8vo, bls. 119-123. Hér.skj. A-Hún: Helga Björg Þorsteinsdóttir.
|