Íslandsvísur | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Íslandsvísur

Fyrsta ljóðlína:Sólargull um fell og fjöll
bls.18–19
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) ferkvætt aBaaaBaB
Viðm.ártal:≈ 1900

Skýringar

Undir fyrirsögn stendur:
Lag: Fífilbrekka! gróin grund!
1.
Sólargull um fell og fjöll,
fögur nótt og heiður dagur,
geislabros við blómavöll,
björt og öflug straumaföll:
svo er títt vor ættjörð öll
unaðsblettur vonarfagur,
sólargull um fell og fjöll,
fögur nótt og heiður dagur.
2.
Fossahreim og ástaróm
eins og harpa í sumarvindi,
draumsins mildi, málmsins hljóm,
móður hlýleik, brimsins róm
á vor tunga, og á þann dóm:
allra vekur hún í lyndi
fossahreim og ástaróm
eins og harpa í sumarvindi,
3.
Því skal helguð ást vor öll
ættarjörð og feðratungu.
Vor skal hreysti hasla völl
harmi lands og verja öll
sund og grund og sólarfjöll,
sjá við böli slysaþungu.
Nú skal helguð ást vor öll
ættarjörð og feðratungu.