Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3139)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
GullbrúðkaupskvæðiFyrsta ljóðlína:Hnígur sól af himins braut
Höfundur:Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson
bls.285
Viðm.ártal:≈ 1875
Tímasetning:1885
Skýringar
Birtist í Ísafold 15. júlí 1885
Hnígur sól af himins braut
hallar lífsins degi, hún við nákalt norðurskaut nemur staðar eigi: eftir nætur dimma dvöl dagur aftur ljómar, og í geislum aldan svöl endurrisin hljómar. Svo er lífsins brautin breið brugðin tvennum högum: morgunstund og myrkra-leið munduð föstum lögum. Heill sé þeim sem hálfa öld hafa saman lifað – og við þeirra ævikvöld er nú þetta skrifað. Heill sé þér, þú Herrans þjón! Hann þig geisla skrýði þig hefir alið frera frón fósturjarðar prýði! Þú hefir hálfa þessa öld þjónað Drottins veldi, huggað marga’ og hjörtun köld hitað guðdóms eldi! Þín var ávallt unaðs-lind: elska, trúa og vona; fjölda varstu fyrirmynd föðurlandsins sona! Yfir Íslands fjöllin fer fegins-blærinn hlýi, er þau lukku óska þér öll með gullnu skýi. |