Vísur | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Vísur

Fyrsta ljóðlína:Meðan rós á grundu grær
bls.95
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) fer- og þríkvætt aBaBcDcD
Viðm.ártal:≈ 1875
Meðan rós á grundur grær,
glóir blóm á vengi,
meðan himins blíður blær
bærir hörpustrengi,
meðan lóan flogið fær
fram um grösugt engi,
ég skal alltaf muna, mær!
Muna þig svo lengi.

Þú hin blíða og sæta sál!
Sinntu mínum lögum!
Þú, sem talar móðurmál
mært í öldnum sögum!
dreyptu á minni drykkjarskál,
dragstu að hörpu slögum,
brautin lífs þó breytist hál,
brugðin harma dögum.

Þegar bláum sól að sjá
sest í ölduglaumi,
þá skal ég þér hvíla hjá,
hulinn ástardraumi!
Þegar loks ég fer þér frá
falinn lífsins straumi,
mundu að ráðin enginn á
á örlaganna taumi.