Sungið við vígslu Barnaskóla Rv, | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Sungið við vígslu Barnaskóla Rv,

Fyrsta ljóðlína:Yfir haustfold enn þá græna
Heimild:Fjallkonan.
bls.1898 21.10 bls. 164
Bragarháttur:Langhenda án forliðar
Viðm.ártal:≈ 1900

Skýringar

Barnaskólahúsið nýja í Reykjavík var vígt 19. okt. 1898 og var ljóð Steingríms yfirkennara sungið eftir ræðuhöld.
1.
Yfir haustfold enn þá græna
algert skólahús vort rís,
opnar sína sali væna,
sér til handa vígslu kýs.
2.
Fræðslan smárra, fögur iðja,
flutti í þennan nýja rann;
heilla skyldi húsi biðja
hver, sem barna framför ann.
3.
Barnaskarans blítt með rómi,
borin fram af hjartans yl,
stígur bæn í hreinum hljómi
himinhæða Ijóssins til:
4, Þessi sala- kærust kynni,
komin þar sem erum nú,
sé af návist signuð þinni,
sannur Guð; — það bænheyr þú.
5, Hér þar námsins fyrstu fræin
falla í ungan hugar-reit,
geisla, dögg og gróðurblæinn,
Guð, frá himni þínum veit.
6.
Virzt í blessun þú að þróa
það sem er í kærleik sáð,
og þess ávöxt öld lát fróa
ótalfalt af þinni náð.