Það rignir – það rignir | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Það rignir – það rignir

Fyrsta ljóðlína:Það rignir – það rignir – en hverju?
Höfundur:Petöfi, Sándor
bls.131
Viðm.ártal:≈ 1875
1.
Það rignir – það rignir – en hverju?
Það rignir kossum svo ört.
Ó, hve mig sannlega sælan
sú signaða rigning fær gjört.
2.
Og svo þegar rignir og rignir
í rennu sjást leiftrin með;
frá augum þínum þau þjóta,
þau þekki eg og tíðum hef séð.
3.
En, bitti! Nú þrumar, nú þrumar,
æ, það fylgir leiftrum hvert sinn!
Eg forða mér, kæra, nú kemur
hann karl gamli, faðir þinn!