Sálmur | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Sálmur

Fyrsta ljóðlína:Jesús grætur, heimur hlær
Höfundur:Jón Thoroddsen
bls.118
Bragarháttur:Sex línur (tvíliður) ferkvætt aBaBCC
Viðm.ártal:≈ 1850

Skýringar

Undir ttli stendur: „eptir Ingemann: Jesus græder, Verden leer...“
1.
Jesús grætur, heimur hlær;
hoppar fifl á grafar barmi;
sína glötun séð ei fær
syndar þý í dauðans armi,
þrællinn gleðst þó fjötri fætur
ferleg synd, en Jesús grætur.
2.
Dauðinn stendur dyrum hjá;
dróma þrældóms, sál mín slíttu!
Jesú grátna ásján á
auðmjúk trúarsjónum líttu!
en ef tár hans einskis metur
ei færð vægð er dóm hann setur.
3.
Jesús grætur, viknið við!
vaknið menn af synda draumi,
fyrr en heimsins lasta lið
loksins ferst í heljar straumi,
vítis slíti viðjar fætur,
vikni menn! því Jesús grætur.